Niðurstaða í rýnivinnu um byggðamál

Evrópusambandið, höfuðstöðvar, Brussel.
Evrópusambandið, höfuðstöðvar, Brussel. AP

Efla þarf stjórnun og eftirlit með ríkisútgjöldum þegar kemur að þeim þáttum sem nauðsynlegir eru til framkvæmdar byggðastefnunnar. Þetta er meðal niðurstaðna ESB vegna rýnivinnu um byggðamál, sem er liður í viðræðum um aðild að ESB.

Íslenskum stjórnvöldum barst í dag niðurstaða Evrópusambandsins vegna rýnivinnunnar um byggðamál. Í svonefndri rýniskýrslu ESB er tíundaður málflutningur fulltrúa Íslands um sérstöðu Íslands vegna mannfæðar, strjálbýlis, dreifbýlis og fjarlægðar frá erlendum mörkuðum.

Meðal þess sem kemur fram í skýrslunni er að íslensk stjórnsýsla sé lítil og sveigjanleg og til staðar sé talsverð reynsla við rekstur og þátttöku í ýmsum áætlunum ESB. Viðeigandi löggjöf er sögð að mestu leyti til staðar en styrkja þurfi lagagrundvöll á nokkrum sviðum og tryggja að fjárlagagerð á sviði byggðamála taki mið af áætlanagerð til lengri tíma.

Við framkvæmd byggðastefnunnar ætlar Ísland að nýta núverandi stjórnsýslu eftir því sem kostur er og hafa hana smáa og einfalda í sniðum, segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu um skýrsluna. Þróa þurfi verklag sem tryggi að reglum ESB um val verkefna og framkvæmd byggðastefnunnar verði fylgt og koma á fót samráðsferli milli ráðuneyta.

Starfsfólk stjórnsýslunnar er að mati ESB hæft og vel menntað en byggja þurfi upp þekkingu vegna framkvæmdar byggðastefnunnar, m.a. á sviði áætlanagerðar, verkefnastjórnunar, eftirlits og mats. 

Tímasett áætlun verði lögð fram

Niðurstaða ESB er kynnt með bréfi til íslenskra stjórnvalda. Þar kemur fram að sambandið telji að forsenda þess að hefja samningaviðræður um byggðamál sé að íslensk stjórnvöld leggi fram ítarlega og tímasetta aðgerðaáætlun þar sem fram komi skýr markmið að því er varðar framkvæmd byggðastefnunnar og þá stjórnsýslu sem nauðsynleg er. Slík áætlun sé mikilvæg í ljósi þess að Ísland hyggst ekki ráðast í stjórnsýslubreytingar í tengslum við aðildarviðræðurnar fyrr en eftir samþykkt aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu. Íslensk stjórnvöld munu nú hefja vinnu við áætlanagerðina og ljúka henni á næstu mánuðum svo hefja megi efnislegar samningaviðræður um málaflokkinn, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Rýniskýrslu ESB um byggðamál má nálgast hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert