Geta fengið nýja ferju

Herjólfur siglir út í Landeyjahöfn.
Herjólfur siglir út í Landeyjahöfn. mbl.is/GSH

Sæferðir, sem gera út ferjuna Baldur, hafa áhuga á að bjóða ferjuna til siglinga til Vestmannaeyja yfir vetrarmánuðina og skoða nú ferju til flutninga yfir Breiðafjörð. Gæti hún hugsanlega verið komin til landsins eftir 4-6 vikur.

Vegagerðin hefur óskað eftir tillögum frá Eimskipi og Sæferðum um hvernig hægt verði að haga ferjusiglingum milli lands og Eyja í vetur.

Í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að samkvæmt nýjustu mælingu þarf að dýpka hafnarmynni Landeyjahafnar um tvo metra til að Herjólfur geti siglt inn í hana.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert