Reyndi að kveikja í bíl

Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst í morgun tilkynning um að reynt hefði verið að kveikja í fólksbíl í Laugarási í Reykjavík. Vegfarandi sá hvar bíl var ekið inn götuna og síðan var eldur borinn að bensíntank bílsins.

Þegar slökkvilið mætti á staðinn, um kl. 6 í morgunn, var lítill eldur við bensínlok bílsins og gekk vel að slökkva hann. Litlar skemmdir urðu því á bílnum.

Rannsókn á málinu stendur yfir en ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til. Hann var horfinn þegar slökkvilið og lögregla mætti á staðinn. Að sögn slökkviliðsins er bíllinn ekki í eigu íbúa í götunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert