Nú er verið að setja saman gagnaver Verne Holding við Ásbrú á gamla Keflavíkurflugvelli. Tuttugu starfsmenn frá Bretlandi eru staddir hér á landi við uppsetninguna en stefnt er að opnun í lok árs.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segist ánægður með framkvæmdina sem bjóði upp á mikla möguleika en meira þurfi til að snúa slæmu atvinnuástandi á svæðinu við.