Of dýrt að flytja Gæsluna

Landhelgisgæslan

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis í dag að þegar til skamms tíma væri litið væri of dýrt að flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja. Málið væri þó áfram til skoðunar.

Hugmyndir um að flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja hafa verið til umræðu í nokkur ár. Ögmundur útilokaði ekki að þetta yrði einhvern tímann gert, en sú skoðun sem fram hefði farið á þessu í ráðuneytinu sýndi að þetta væri of dýrt til að ríkissjóður réði við þetta núna.

Ögmundur upplýsti einnig á fundinum að hann hefði fengið bréf frá Isavia og Landhelgisgæslu um að það bráðabirgðafyrirkomulag sem var ákveðið eftir að Varnarmálastofnun var lögð niður yrði framlengt. Hann sagði að engin óvissa ríkti um stöðu starfsmanna Landhelgisgæslunnar hvað þetta mál varðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert