Lögreglan á Akureyri stöðvaði mann á þrítugsaldri grunaðan um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna.
Í framhaldinu var gerð húsleit á heimili hans þar sem fundust um 100 grömm af kannabisefnum sem voru haldlögð. Maðurinn var látinn laus að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst.