Maður var bitinn af hundi á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun. Hann var við útburð þegar þetta gerðist og var bitinn í fótlegginn, samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni.
Í kjölfarið leitaði bréfberinn á slysadeild en ekki er vitað frekar um meiðslin. Ekki er ljóst hvað verður um hundinn, að sögn lögreglu.