Samkomulag hefur náðst í kjaradeilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair. Samkvæmt upplýsingum mbl.is hafa flugfreyjur skrifað undir kjarasamning við Icelandair. Fyrirhuguðu verkfalli hefur þar með verið aflýst.
Fulltrúar Flugfreyjufélags Íslands og fulltrúar Icelandair hafa fundað í húsakynnum ríkissáttasemjara frá því kl. 11 í morgun.
Viðræður hófust eftir að flugfreyjur felldu kjarasamning öðru sinni.