Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík (FEB) mótmælir því, að lífeyrir aldraðra eigi aðeins að hækka um 3,5% næsta ár samkvæmt fjárlagafrumvarpi, þegar verðbólgan er áætluð 5,1%.
Þetta kemur fram í ályktun frá nefndinni, sem var samþykkt í dag.
„ASÍ hefur mótmælt þessu og telur það brot á samkomulagi ASÍ og ríkisstjórnarinnar frá því sl. vor, er kjarasamningar voru gerðir. Áður hefur velferðarráðherra farið á svig við umrætt samkomulag með því að ákveða að lægstu bætur aldraðra (lágmarksframfærslutrygging) skyldi aðeins hækka um 6,5% 1. júní sl. þegar lægstu laun hækkuðu um 10,3%. Kjaranefnd bendir á, að það var alveg skýrt samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, að tryggingabætur áttu að hækka jafnmikið og kaup launþega,“ segir ennfremur í ályktunni.