Þyrla Landhelgisgæslunnar stóð á ellefta tímanum í gærkvöldi línubát að meintum ólöglegum veiðum á Fljótagrunni, inni í hólfi þar sem veiðar eru bannaðar samkvæmt reglugerð um bann við línu- og handfæraveiðum á Fljótagrunni.
Var bátnum vísað til hafnar þar sem lögreglan tók á móti honum og tekin var skýrsla af skipverjum, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni.