Hverfa ætti frá öllum hugmyndum um byggingu á Vallhallarreitnum á Þingvöllum. Þá ætti að fjarlægja alla sumarbústaði úr þjóðgarðinum fyrir árið 2028 stækka þjóðgarðinn til austurs og norðausturs að Langjökli, þannig að hann fylgi þjóðlendulínum og afréttir Þingvallajarðar verði innan hans. Þetta er meðal tillagna Hjörleifs Guttormssonar, fyrrverandi ráðherra, til Þingvallanefndar.
Þingvallanefnd bauð í sumar til hugmyndasamkeppni um framtíð Þingvallaþjóðgarðar. Samkeppninni var hrundið af stað eftir að vangaveltur hófust um hvað gæti komið í staðinn fyrir Hótel Valhöll, sem brann í júlí 2009.
Hjörleifur segir að um áratugi hafi erfiðleikar og meinbugir fylgt rekstri Valhallar. Hann bendir á hættuna á landbreytingum þar vegna jarðhræringa og segir að mengun frá rekstri Varhallar hafi verið stöðugt og torleyst vandamál og ógnun við líf í Öxará og Þingvallavatni. Hann leggur til að engar varanlegar byggingar verði heimilaðar, umfram þær sem nú eru til staðar, innan þjóðgarðsins á svæðinu milli Almannagjár í vestri og Hrafnagjár í austri, nema snyrtingar og smáhýsi tengd þjónustu við ferðafólk.
Hjörleifur er þeirrar skoðunar að sumarbústaðir eigi að víkja úr þjóðgarðinum fyrir 100 ára afmæli stofnunar hans, árið 2028. Leggur hann til að leigusamningum um bústaði innan þjóðgarðsins verði sagt upp og þeir fjarlægðir einn af öðrum. Hjörleifur bendir á að allt frá árinu 1967 hafi sú hugmynd verið viðruð að sumarbústaðir skuli víkja úr þjóðgarðinum. Síðast árið 2004 hafi Alþjóðaráð um minnisvarða og sögustaði lagt til að leigusamningar yrðu ekki endurnýjaðir í þjóðgarðinum. Það var eftir sem áður gert í fyrra og gagnrýnir Hjörleifur Þingvallanefnd fyrir að virða ekki stefnumörkun um þjóðgarðinn.
Meðal annarra tillagna Hjörleifs um framtíð Þingvalla má nefna tillögu um að framandi gróður verði fjarlægður úr þjóðgarðinum, að byggt verði upp kerfi vistvænna almenningssamgangna í og við þjóðgarðinn og að gefið verði út kynningarrit um fornleifar í Þingvallaþjóðgarði.