Enginn er alvarlega slasaður eftir bílslys á Kringlumýrarbraut í dag, að sögn læknis á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Sex voru fluttir þangað í hádeginu.
Að sögn lögreglunnar varð slysið með þeim hætti að bíll, sem ekið var á miðakrein í norðurátt, bilaði og í kjölfarið var ekið aftan á hann.