Fargjald Herjólfs hækkar

Herjólfur siglir til Landeyjahafnar þessa dagana.
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar þessa dagana. mbl.is/Ómar

Eimskip hefur tilkynnt um hækkun fargjalda með Herjólfi. Hækkunin er vegna verðlagshækkana frá því siglingar Herjólfs hófust um Landeyjahöfn og nemur 15%.

Hækkunin tekur gildi 1. nóvember næstkomandi.

Fargjald fullorðins mun hækka úr 1000 í 1150 krónur. Gjald fyrir minni bíla hækkar úr 1600 í 1840 krónur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert