Þorvaldur Maríuson bókasali hefur sett handskrifað handrit að Ofvitanum til sölu á uppboðsvefinn eBay. Segir hann eðlilegt verð um 10.000 kr. fyrir hverja blaðsíðu en verkið er um 350 blaðsíður.
„Ég keypti þetta handrit fyrir tveimur árum af manni sem þá var að minnka við sig. Þetta er það sem er kallað prentsmiðjueintak og bókin er prentuð eftir þessu handriti,“ segir Þorvaldur í Morgunblaðinu í dag.
Handritið er handskrifað af Þórbergi og er að mati Þorvaldar mjög verðmætt. „Erlendis eru svona handrit metin töluvert. Hér á landi er vissulega áhugi fyrir hendi en menn vilja bara ekkert borga fyrir þetta.“
Í morgun hafði ekkert tilboð verið gert í handritið, samkvæmt uppboðsvefnum.