Borðuðu smyglað kjöt og veiktust

Átta veiktust eftir að hafa borðað hollenskar andabringur sem var …
Átta veiktust eftir að hafa borðað hollenskar andabringur sem var smyglað til landsins. Myndin er úr safni. mbl.is/Arnaldur

Tveir einstaklingar greindust með Salmonella enteritidis á sýklafræðideild Landspítalans í lok september, en við nánari athugun kom í ljós að báðir aðilarnir höfðu tekið þátt í 40 manna matarveislu í heimahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Sóttvarnalæknir segir að um alvarlegan atburð sé að ræða.

Fram kemur á vef Landlæknisembættisins að við rannsókn hafi komið í ljós að meðal matfanga hafi verið hollenskar andabringur sem smyglað hafði verið til landsins. Bringurnar munu hafa verið framreiddar vel rauðar.

Þá segir að alls muni átta manns hafa veikst eftir veisluna. Frystar hráar bringur hafi ennþá verið til og var Salmonella enteritidis staðfest í þeim.

„Baktería þessi er þekkt fyrir að valda mjög alvarlegum sýkingum og jafnvel dauðsföllum í fólki. Hér á landi greinist Salmonella enteritidis yfirleitt í tengslum við ferðir fólks erlendis en stöku tilfelli af innlendum uppruna greinast þó árlega.

Þó skal minnt á umfangsmikla matarsýkingu sem kom upp fyrir nokkrum árum á Landspítalanum, þar sem nokkrir létust af völdum þessarar bakteríu og tengdist hún neyslu á rjómabollum. Uppruni þeirrar sýkingar var aldrei rakinn með fullri vissu,“ segir á vef embættisins.

„Matvælastofnun og sóttvarnalæknir vilja af þessu tilefni vekja athygli almennings, matvælafyrirtækja og matreiðslumanna á að hér er um alvarlegan atburð að ræða af eftirfarandi ástæðum:

  1. Allur innflutningur á hráu kjöti er bannaður samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Ofangreindur innflutningur er því lögbrot. Heimilt er að sækja um leyfi til innflutnings og þegar undanþáguheimild er veitt þá er þess gætt að öll vottorð fylgi með sem staðfesta að sjúkdómsvaldandi örverur fyrir menn og dýr séu ekki til staðar í kjötinu.
  2. Það eru gömul sannindi og ný að allt fuglakjöt á að gegnumsjóða eða steikja vel til að tryggja eyðingu sjúkdómsvaldandi örvera sem gætu leynst í kjötinu. Það tilfelli sem hér um ræðir er staðfesting á þessu,“ segir ennfremur.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert