Bóndi á Drangsnesi á Ströndum hafði samband við lögregluna í gærmorgun eftir að hann hafði komið að dráttarvél sinni í gangi þar sem hún stóð uppi við stafla af heyrúllum. Var vélin búin að grafa sig niður að aftan.
Lögreglan á Vestfjörðum segir, að við nánari skoðun hafi komið í ljós að mjög líklega hafi orðið einhver samsláttur í rafkerfinu, þá hugsanlega vegna músagangs, og við það hafi vélin farið í gang.