Samstarfssamningur um jarðhitamál

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Sergey Shmatko, orkuráðherra Rússlands, undirrituðu í dag samstarfssamning milli Íslands og Rússlands um jarðhitamál.

Fram kemur í tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu að Rússar hafi mikinn áhuga á frekari nýtingu jarðhita og markmiðið með samningnum sé að auka rannsókna- og vísindasamstarf ríkjanna á sviði jarðhita en einnig að efla tengsl fyrirtækja er vinni að nýtingu jarðhita.

Þá segir að haldin hafi verið alþjóðleg orkuráðstefna í Moskvu í dag og flutti Katrín ávarp við opnunarathöfn hennar, en ráðuneytið segir að á ráðstefnunni séu saman komnir margir af helstu áhrifamönnum á sviði orkumála í Rússlandi og Evrópu.

Í tengslum við ráðstefnuna var haldið málþing um nýtingu jarðhita og flutti Katrín þar opnunarávarp. Málþingið sitja m.a. fulltrúar frá Landsvirkjun, Reykjavík Geothermal, Orkustofnun og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Á morgun mun Katrín undirrita samstarfssamning milli ríkjanna um ferðamál og í tengslum við hann munu fulltrúar nokkurra íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja kynna starfsemi sína fyrir rússneskum ferðaskrifstofum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert