Nýr sími Apple, iPhone 4S, er kominn í verslanir Nova. Að sögn fyrirtækisins kostar síminn 169.990 krónur hjá Nova en ákveðin símnotkun fylgir með.
Nova segir að iPhone 4S sé mun dýrari á Íslandi en t.d. í Bretlandi og Bandaríkjunum þrátt fyrir að álagning fyrirtækisins sé óveruleg. Ísland sé enn sem komið er ekki á lista yfir lönd sem fái iPhone 4S í beina sölu frá Apple og þar sem eftirspurnin eftir símanum sé mikil og magnið takmarkað sé ekki hægt að bjóða hann á betra verði.