Margt skrítið við þetta hrottalega mál

Maðurinn missti mikið blóð

Árið 2006 var tilkynnt um hrottalega líkamsárás á vinnusvæði Kárahnjúka en fjallað er um málið í þættinum 112 hér á MBL Sjónvarpi. Maður fannst liggjandi í blóði sínu með mikla áverka á hálsi og höfði en hann sagði tvo menn hafa ráðist á sig.

Um 500 manns unnu á þessu afskekkta svæði og því þótti líklegt að árásarmennirnir leyndust meðal þeirra. Mikill órói greip um sig meðal starfsmanna en fljótlega fór rannsóknardeild lögreglunnar að gruna að ekki væri allt með felldu.

Rétt er að vara viðkvæma við myndunum sem birtast í þættinum.

Hægt er að horfa á þáttinn hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert