Ríkisstjórnin fagnar niðurstöðunni

Ríkisstjórn Íslands fagnar niðurstöðu Hæstaréttar í dag og segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að með honum hafi óvissu um mikilvægt grundvallaratriði verið eytt.

Með dómum Hæstaréttar, sem gengu í dag, er forgangur innstæðna við skipti á búum gömlu bankanna staðfestur, líkt og neyðarlögin frá því í október 2008 mæltu fyrir um. Ríkisstjórnin fagnar þessari niðurstöðu. Með henni hefur óvissu um mikilvægt grundvallaratriði verið eytt," segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert