Lögreglan á Akranesi gerði húsleit í heimahúsi á Akranesi síðastliðinn föstudag. Rökstuddur grunur lá fyrir um að í húsinu færi fram ræktun kannabisefna.
Sá grunur var staðfestur við leitina og voru 12 kannabisplöntur haldlagðar. Húsráðandi sem handtekinn var á vettvangi gekkst við ræktuninni og kvað efnin ætluð til eigin nota.