Dagur án lista

Í dag stendur Bandalag íslenskra listamanna fyrir listalausa deginum en markmiðið með honum er að vekja athygli á þýðingu menningar og lista í hinu daglega lífi.

Boðorð BÍL á deginum eru eftirfarandi:

  1. Ekki fara á listasöfn, hönnunarsöfn, gallerí eða minjasöfn sem geyma listaverk.
  2. Ekki horfa á myndlistarverk, þar með talin málverk, ljósmyndir, höggmyndir og innsetningar, hvort sem er úti sem inni.
  3. Ekki fara á tónleika.
  4. Ekki hlusta á tónlist, hvorki af CD, vínyl, snældu, stafrænum tónlistarspilurum né snjallsímum (hringitónar meðtaldir).
  5. Ekki spila tölvuleik með grafískri mynd.
  6. Ekki fara á danssýningu.
  7. Ekki lesa skáldsögu, ljóð eða nokkurn annan texta sem talist gæti til fagurbókmennta.
  8. Ekki fara í leikhús.
  9. Ekki horfa á kvikmynd, hvorki í bíó, af tölvu, í sjónvarpi né hverskonar skjá
  10. Ef einhvers konar listaverk birtist í sjónvarpi, t.d. í fréttum eða auglýsingum, ber að loka augunum eða líta undan.
  11. Ef tónverk heyrist í sjónvarpi eða útvarpi ber að lækka niður í tækinu.
  12. Ekki horfa á byggingar sem eru hannaðar af arkitekt.
  13. Ekki horfa á eða ganga um garða sem eru hannaðir af landslagsarkitekt.
  14. Ekki horfa á eða ganga í sérhönnuðum fötum eftir fatahönnuð.
  15. Ekki gera neitt eða njóta neins sem hægt væri að túlka sem list eða hefur í sér listrænt gildi, þar með talin verk dansara, hönnuða, kvikmyndagerðarmanna, leikara, myndlistar-manna, rithöfunda og tónlistarmanna.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert