Hlutar úr hraðahindrunum sem stolið var á Hellu um helgina fundust strax í Ytri-Rangá. Tjón sveitarfélagsins vegna skemmdarverkanna hleypur á hundruðum þúsunda króna. Fréttavefurinn sunnlenska.is greinir frá þessu.
Um síðustu helgi voru unnin skemmdarverk á hraðahindrunum og eftirlitsmyndavél stolið á Hellu. Átta einingar voru fjarlægðar úr hraðahindrunum við Þrúðvang og Freyvang og fannst helmingur þeirra daginn eftir í Ytri-Rangá.
Fram kemur á vefnum að íbúar á Hellu hafi í langan tíma kvartað yfir hraðakstri á götum bæjarins og brást sveitarfélagið við með því að setja niður hraðahindranir úr einingum á hættulegustu staðina. Tjón sveitarfélagsins vegna skemmdarverkanna um helgina hleypur á hundruðum þúsunda króna.
Sveitarstjórn lítur málið mjög alvarlegum augum og hefur það verið kært til lögreglunnar. Íbúar á Hellu og aðrir sem telja sig hafa upplýsingar sem upplýst geta málið eru beðnir að snúa sér til lögreglunnar á Hvolsvelli, segir í frétt sunnlenska.is.