„Ég get ekki sagt að þetta komi mér á óvart miðað við það sem á undan er gengið,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins um þá ákvörðun Hönnu Birnu Kristjánsdóttur um að bjóða sig fram gegn honum í embætti formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins sem haldinn verður dagana 17.-20. nóvember nk.
„Þetta hefur engin áhrif á mín áform varðandi það að bjóða mig fram,“ segir Bjarni.
Hann segir ákvörðun Hönnu Birnu hafa legið í loftinu miðað við umræðu undanfarinna daga og vikna og að hann sé tilbúinn til að taka slaginn.