„Formannskjörið að þessu sinni snýst um það hver muni leiða okkur til sigurs í næstu kosningum,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir um ákvörðun sína að bjóða sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum. Hún segist fylgja stefnu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum og vill hætta aðildarviðræðum.
MBL Sjónvarp ræddi við Hönnu Birnu um framboðið.