Iðnaðarráðuneytið segir að frestur til að skila umsögn um rammaáætlun þar sem mörkuð sé stefna um hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða renni út 11. nóvember.
Rammaáætlunin hefur verið til umsagnar hjá þjóðinni frá 19. ágúst segir á vef ráðuneytisins.
„Opnu 12 vikna samráðs- og kynningarferli um drög að þingsályktun iðnaðarráðherra og umhverfisráðherra um rammaáætlun lýkur á miðnætti föstudaginn 11. nóvember. Með rammaáætlun er mörkuð stefna um það hvaða virkjunarkostir komi til greina og hvaða svæði beri að friða og er markmiðið að ná framtíðarsýn í verndunar- og virkjanamálum og almennri sátt í þjóðfélaginu.
Umsagnir eru sendar inn í gegnum vefsíðuna rammaaetlun.is og þar má jafnframt sjá allar innkomnar umsagnir og viðamiklar ítarupplýsingar s em tengjast vinnunni á bak við rammaáætlunina sem staðið hefur yfir allt frá árinu 1999,“ segir í tilkynningunni.
Allar innkomnar umsagnir má sjá á vefsvæðinu rammaaaetlun.is.