Vegna óhagstæðrar ölduspár fyrir Landeyjahöfn næstu daga mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar um helgina að því er segir í tilkynningu frá Eimskip, sem annast rekstur Herjólfs.
Á hádegi á sunnudag verður tekin ákvörðun um hvort Herjólfur geti siglt um Landeyjahöfn næstu daga á eftir.
Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á vef Herjólfs.