Öllum sagt upp hjá Skálholtsskóla

Skálholtskirkja
Skálholtskirkja mbl.is/Brynjar Gauti

Vegna endurskipulagningar á starfsemi Skálholtsskóla og hagræðingar í rekstri telur kirkjuráð óhjákvæmilegt að segja öllu starfsfólki skólans upp störfum og endurmeta starfsmannahaldið. Var þetta kynnt starfsfólki á fundi fyrr í dag.

Kirkjuráð hefur á undanförnum mánuðum unnið að endurskipulagningu á rekstri Skálholts og Skálholtsskóla. Lagt var mat á skipulag staðarins, stöðu vígslubiskups, rektors Skálholtsskóla og annarra sem hafa komið að stjórn og rekstri staðarins. Til þessa verks voru fengnir sérfróðir aðilar um skipulag og rekstur.

Ríkisendurskoðun vinnur úttekt á rekstri skólans

Rekstur hefur reynst erfiður og ekki er unnt að styðja við hann með sama hætti og áður vegna niðurskurðar hjá þjóðkirkjunni. Kirkjuráð ákvað í hagræðingarskyni að stjórn Skálholts yrði lögð niður og tók kirkjuráð að nýju að sér það hlutverk. Þá var bókhald Skálholts fært til Biskupsstofu og þess farið á leit við Ríkisendurskoðun að gera fjárhagsúttekt á rekstri skólans og stendur hún enn yfir.

Í ljósi þessa ákvað kirkjuráð að draga verulega úr starfsemi skólans. Hætt verður með almennan hótel- og veitingarekstur og lögð megináhersla á sérstöðu Skálholts með sögu staðarins og kirkjuna sem þungamiðju, sem stað helgi og kyrrðar, fræðslu, menningar og tónlistarlífs.

Vígslubiskupi í Skálholti og biskupsritara hefur verið falið að vinna að framkvæmd þessara skipulagsbreytinga, samkvæmt upplýsingum frá þjóðkirkjunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert