Enginn sjúkrabíll í Reykjanesbæ

mbl.is / Hjörtur

Sú staða kom upp á Suðurnesjum í gær að enginn tiltækur sjúkrabíll var í Reykjanesbæ. Allir bílarnir voru uppteknir við flutninga á sjúklingum á sjúkrahús í Reykjavík.

Þetta gerðist skömmu eftir hádegi í gærdag.

Sjúkrabifreið frá Grindavík var sett í viðbragðsstöðu og var hún send að gatnamótum Reykjanesbrautar og Grindavíkurvegar til að vera miðsvæðis ef kalla þarf hana til.

Á vef Víkurfrétta segir að lítið megi út af bregða þegar þessi staða komi upp á Suðurnesjum.

Brunavarnir Suðurnesja höfðu áður yfir að ráða fjórum sjúkrabílum en þeir eru í dag þrír. Sama ástand kom upp fyrir rúmri viku.

Frétt Víkufrétta

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka