Lentu út af í Bakkaselsbrekku

Margir lentu í erfiðleikum í Bakkaselsbrekku á Öxnadalsheiði um miðjan dag í dag, en þar var mikil hálka og krap. Nokkuð var um að bílar lentu út af veginum og stöðvuðu þá alla umferð. Lögregla stóð í ströngu við að draga bílana aftur inn á veginn til að þeir gætu haldið áfram för sinni.

Vegagerðin fór einnig á staðinn og hefur haldið umferð opinni, en færðin er nú nokkru betri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert