Aflýsa flugferðum vegna veðurs

Flugferðum Flugfélags Íslands til og frá Ísafirði hefur verið aflýst vegna veðurs það sem eftir er dagsins.

Athuga á hvort hægt verði að fljúga um níuleytið í fyrramálið.

Flug til og frá Akureyri verður athugað klukkan fimm, en fljúga átti þangað frá Reykjavík klukkan fjögur í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá Keflavíkurflugvelli hefur veðrið engin áhrif á flug til og frá vellinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert