Búið er að losa fjóra Litháa úr gæsluvarðhaldi sem þeir voru dæmdir í eftir að kókaín fannst í sumarbústað þeirra í Árnessýslu. Þeir verða hins vegar í farbanni á meðan rannsókn málsins stendur yfir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi sem fer með rannsóknina.