Bíll ók á staur við Kúagerði á Reykjanesbraut um klukkan hálfsex í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum slasaðist enginn við ákeyrsluna.
Afar slæmt skyggni er á þessum slóðum og beinir lögregla þeim tilmælum til þeirra sem leið eiga um Reykjanesbrautina að aka með gát.