Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, átti í dag fund med Herman Van Rompuy, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins, í Brussel.
Á fundinum ræddu þau um stöðu efnahagsmála á alþjóðavettvangi, einkum vandann sem leiðtogar evrusvæðisins og Evrópusambandsins hafa unnið að því að leysa undanfarnar vikur.
Rætt var um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins og fyrirhugað ferli viðræðnanna á næstu mánuðum. Næsta ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins verður haldin í desember þar sem að fleiri samningskaflar verða opnaðir. Forsætisráðherra kvað ánægjulegt hvað ferlið gengi vel og að stórir kaflar væru óumdeildir eða þegar innleiddir, að því er segir í fréttatilkynningu.
Segir fundinn jákvæðan og gagnlegan
Einnig var á fundinum rætt um stöðu mála varðandi endurreisn efnahagslífsins á Íslandi og þann árangur sem náðist, m.a. með samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
„Fundurinn var mjög jákvæður og gagnlegur að því er varðar samskipti Evrópusambandsins við Ísland um aðildarferlið. Jafnframt áttum við upplýsandi samtal um stöðu og þróun efnahagsmála innan Evrópusambandsins”, segir forsætisráðherra í fréttatilkynningu.