„Það er rangt sem segir í yfirlýsingu þingsflokks framsóknarmanna að ég hafi í grein minni Þjóðleg gildi og andstaða við innflytjendur í Fréttatímanum síðastliðinn föstudag „gefið sterklega í skyn að Framsóknarflokkurinn tengist hatursfullri öfgaþjóðernishyggju og andúð á innflytjendum sem fjallað er um í sömu grein.“," segir í yfirlýsingu sem Eiríkur Bergmann dósent í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst og höfundur Heimsins í Fréttatímanum hefur sent frá sér vegna athugasemdar frá þingflokki Framsóknarflokksins.
Umfjöllun Eiríks um Framsóknarflokkinn var í sérstakri málsgrein og orðrétt svona:
„Í allra síðustu tíð hefur Framsóknarflokkurinn svo eilítið farið að daðra við þjóðernisstefnuna. Breytingar á merki flokksins vísar til að mynda í klassísk fasísk minni og áhersla hefur verið á að sýna þjóðleg gildi á fundum flokksins, svo sem glímusýningu undir blaktandi þjóðfánanum. Orðræða sumra þingmanna hefur í auknum mæli einkennst af hollustu við þjóðernið. Enn þó er þó ekki ljóst hvort flokkurinn ætli sér að sækja enn lengra inn í þetta mengi.“ (Fréttatíminn 04.11.2011, sjá bls 46).
„Þetta er mat mitt á málflutningi Framsóknarflokksins. Ég stend því við hvert orð. En í þeim er felst enginn annar dómur öfugt við þá túlkun sem þingflokkur Framsóknarflokksins leggur í orð mín í yfirlýsingu sinni. Ég ber að mörgu leyti djúpa virðingu fyrir sögu og stefnu Framsóknarflokksins sem og fyrir málflutningi margra framsóknarmanna. Mér finnst þó að þingflokkur framsóknarmanna eigi að geta þolað það að um hann sé fjallað án mikillar tæpitungu á almennum vettvangi.
Því má hér við bæta að ég hef í áraraðir rannsakað þjóðernisumræðu, hérlendis og erlendis – svo sem lesa má um í doktorsritgerð minni og bókinni Sjálfstæð þjóð – trylltur skríll og landráðalýður sem kom út hjá Veröld í vor.
Um framsetningu og myndskreytingu sem framsóknarmenn gera einnig athugasemd við í yfirlýsingu sinni vísa ég á Fréttatímann en ég kem ekki að myndavali eða útlitsteikningu blaðsins.
Og mætti ég svo kannski í fyllstu vinsemd spyrja hér í lokin hvað átt er við með þessari setningu í yfirlýsingu framsóknarmanna: „Óásættanlegt er að dósent við Háskólann á Bifröst skrifi á þennan hátt í nafni skólans.“ Hvað nákvæmlega á Háskólinn á Bifröst að gera í því? Er hér á ferðinni tilraun til þöggunar? Jafnvel hótun?," segir í yfirlýsingu sem Eiríkur Bergmann hefur sent frá sér.