Framboð á flugferðum eykst

Ferðalangar bíða eflaust spenntir eftir því að sjá hvort aukið …
Ferðalangar bíða eflaust spenntir eftir því að sjá hvort aukið flugframboð leiði ekki til lægra miðaverðs. Ómar Óskarsson

Framboð á flugi til Lundúna eykst um 12% þegar Easy Jet hefur flug fá Keflavík til Luton-flugvallar í Lundúnum í vor. Heildarfjöldi flugferða frá Keflavíkurflugvelli eykst á sama tíma um 1%.

Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is en þar hefur listi yfir fjölda brottfara frá Keflavíkurflugvelli verið tekinn saman. Icelandair er það félag sem flýgur oftast frá Íslandi, eða um 185 sinnum í viku, Iceland Express um 70 sinnum í viku og Airberlin 10 sinnum.

Fyrst um sinn hyggst Easy Jet fljúga frá Keflavík þrisvar sinnum í viku.

Því er við þetta að bæta að hið nýja íslenska flugfélag WOW-air, sem einnig hefur flug frá Keflavíkurflugvelli næsta vor, hefur enn ekki tilkynnt áfangastaði sína og er því ekki með í þessum útreikningum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert