Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir mikinn tilfinningahita í kringum fyrirhuguð kaup Huangs Nubo á jörðinni á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann segir þó fleiri vera andvíga kaupunum en fylgjandi. Hann telur jafnframt fráleitt að íslenska ríkið gæti verið skaðabótaskylt yrði kaupunum hafnað.