Vestmannaeyjaferjan Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar fram til fimmtudagsins 17. nóvember. Fram kemur í tilkynningu að ástæðan sé dýpi í Landeyjahöfn og erfið dýpkunarskilyrði næstu 4-6 daga.
Brottför frá Vestmannaeyjum kl 8:00 og 15:30
Brottför frá Þorlákshöfn kl 11:45 og 19:15.
Fram kemur að aðstæður geti þó breyst hratt. Reynt verði að bregðast við þeim og senda þar að lútandi tilkynningar. Þær má sjá á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi.