Vegir eru auðir nánast um allt land en hálkublettir eru á stöku fjallvegum á Vestfjörðum. Þoka er sumstaðar á fjallvegum um vestan- og norðanvert landið.
Hvalfjarðargöng
Vegna viðhaldsvinnu verða Hvalfjarðargöng lokuð yfir nóttina frá miðnætti til klukkan sex að morgni til 18. nóvember.