Í hlýindum sem nú ganga yfir landið getur vindur orðið sérlega hvass sums staðar vestanlands. Mjög hvasst er á Reykjanesbraut þvert á akstursstefnu og er spáð að vindhraðinn verði allt að 30 metrar á sekúndu fram á nótt.
Spáð er vindhviðum allt að 30-40 m/s á utanverðu Kjalarnesi, undir Hafnarfjalli og á norðanverðu Snæfellsnesi frá því um sjöleytið í kvöld og fram eftir kvöldi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Gert er ráð fyrir að það taki að lægja snemma í fyrramálið.