Helga Mjöll Oddsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri hjá Leikfélagi Akureyrar. Ráðið er til 6 mánaða og er starfsvið verkefnastjóra að fylgja eftir í verki leikárinu sem búið er að kortleggja og nú þegar hafið er. Ellefu manns sóttu um starfið.
Helga er 31 árs Akureyringur, með BA í textílhönnun. Helga hefur ýmsa reynslu af framleiðslu á leiknu efni bæði í leikhúsi og í kvikmyndum. Hún hefur starfað áður fyrir LA, fyrst árið 2007 sem aðstoðarmaður við búninga og aftur núna í haust þegar Helga hannaði búningana fyrir leiksýninguna Svarta Kómedían sem er sýnd í Samkomuhúsinu um þessar mundir, segir í tilkynningu frá LA.