Velta í dagvöruverslun dróst saman um 1,9% á föstu verðlagi í október miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 2,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana í október saman um 0,1% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 4,8% á síðastliðnum 12 mánuðum.
Sala áfengis dróst saman um 11,3% í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 7,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í október 3,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 3,9% hærra í október síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.
Fataverslun dróst saman um 19,6% í október miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 18,6% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta fataverslunar í október saman um 16,4% frá sama mánuði árið áður. Verð á fötum var 1,3% lægra en í sama mánuði fyrir ári.
Velta skóverslunar dróst saman um 25,1% í október á föstu verðlagi og um 22,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði um 3,3% frá september í fyrra. Velta húsgagnaverslana jókst um 5,1% í október frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og um 8,6% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 3,3% hærra í október síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta sérverslana með rúm jókst um 10,3% frá sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 0,1% í október síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi.
Sala á raftækjum í október dróst saman um 1,9% á föstu verðlagi og um 4,8% á breytilegu verðlagi. Verð á raftækjum var 2,9% lægra en í október 2010.
LEIÐRÉTTING:
Vegna villu í innsendum gögnum var velta fata- og skóverslana vanmetin í smásöluvísitölu Rannsóknasetursins sem birt var í morgun.
Villan hefur verið leiðrétt og talnaefni hér. Eftir leiðréttingu sína veltutölur tiltölulega litla breytingu í þessum tveim flokkum frá fyrri mánuði og fyrra ári.