Starfmannafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur samþykkt kjarasamning við fjármálaráðherra. Alls voru 95 á kjörskrá og greiddu 87 atkvæði. Af þeim samþykktu 80 samninginn.
Félagið hafði boðað verkfall til að knýja á um samning, en samningar tókust degi áður en verkfallið átti að hefjast.