Stór hluti allra fjárfestinga og skuldbindinga Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2007 og 2008 flokkast nú sem glatað fé, að mati rýnihóps eigenda orkuveitunnar.
Þetta kemur fram í skýrslu rýnihópsins, sem afhent var stjórn Orkuveitunnar í byrjun ársins og fjallað var um í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi. Er höfuðstóll mögulegra óarðbærra eða tapaðra fjárfestinga talinn vera um 30 milljarðar króna.
Í skýrslunni eru fjölmörg atriði gagnrýnd og m.a. nefnt, að raforkusölusamningar vegna Hellisheiðarvirkjunar og Hverahlíðavirkjunar, sem undirritaðir voru 2007 og 2008, beri keim af mikilli áhættusækni stjórnenda og stjórnar Orkuveitunnar. Það birtist m.a. í skorti á innbyggðum áhættuvörnum og fyrirhyggjuleysi varðandi langtímafjármögnun þessara stóru verkefna.
Þá segir í skýrslunni, að afleiðingar raforkusölusamnings hafi komið í ljós í ágúst 2010 þegar lausafjárstaða Orkuveitunnar var slík að varla var hægt að greiða laun til starfsmanna.
Í Kastljósi kom fram, að í lok skýrslunnar segi að enn frekari aðgerða sé þörf til viðbótar aðgerðum sem farið var í haustið 2010. Skömmu eftir að skýrslan kom út hafi verið skorið niður í rekstri Orkuveitunnar og gjaldskrá hennar hækkuð.