Sveitarfélögin Álftanes og Borgarbyggð áttust við í spurningaþættinum Útsvari í kvöld, en þátturinn var sýndur í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu. Álftanes stóð uppi sem sigurvegari og kemst áfram í næstu umferð. Leikar fóru 78-50 fyrir Álftnesinga.
Fyrstu umferð keppninnar er nú lokið og er búið að draga hvaða lið muni mætast í annarri umferð. Meðal viðureigna er nágrannaslagur Álftnesinga við Garðbæinga.