Ómaklega vegið að kirkjuþingi

Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.
Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings.

Forseti kirkjuþings segir að um það verði ekki lengur deilt að þjóðkirkjan sé í forystu þeirra sem vilji taka höndum saman um fyrirmyndarvinnubrögð vegna ásakana um ofbeldi og misnotkun á kirkjulegum vettvangi.

Þá segir Pétur Kr. Hafstein að eftir aukakirkjuþingið í sumar um einhuga fyrstu viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings hafi ómaklega verið að því vegið, þegar hann sleit kirkjuþingi í dag.

„Sumir sögðu að kosning úrbótanefndarinnar hefði verið til þess eins fallin að kæfa málið og svæfa þótt öllum hugsandi mönnum hefði átt að vera ljóst að hér var aðeins verið að stíga fyrsta skrefið. Öðrum sýndist, með orðum Páls postula til Korintumanna, að nú væri „hagkvæm tíð”, nú væri „hjálpræðisdagur” fyrir alla forystu þjóðkirkjunnar, hvern einasta kirkjuþingsfulltrúa, forseta kirkjuþings, kirkjuráð og biskup Íslands, að stíga til hliðar og viðurkenna að henni hefði mistekist að stýra skipinu heilu út úr brotsjónum – og var þó rétt verið að láta úr höfn,“ sagði Pétur.

„Í forystugrein Fréttablaðsins skömmu eftir aukaþingið var sagt að margir hefðu bundið vonir við kirkjuþingið og viðbrögð þess hljóti því að vera mikil vonbrigði öllum þeim sem vilji vera þátttakendur í samfélagi kirkjunnar og vilji treysta fulltrúum hennar. Hér er á ferðinni mikil dómharka án allrar ábyrgðar, án sanngirni og án sannleiksleitar. Öll þessi viðbrögð bera vott um vanstillingu og veikburða kristilegt þolgæði og eru í raun og veru í algjörri mótsögn við málefnalegt framlag ykkar kirkjuþingsfulltrúa, bæði á aukaþinginu og á þessu þingi,“ sagði Pétur.

„Um það verður ekki lengur deilt að þjóðkirkjan er í forystu þeirra sem vilja taka höndum saman um fyrirmyndarvinnubrögð vegna ásakana um ofbeldi og misnotkun á kirkjulegum vettvangi. Það hefur ljóslega sýnt sig í störfum þessa kirkjuþings og það mun koma enn betur í ljós í þeim viðamiklu verkefnum á þessu sviði sem framundan eru,“ sagði Pétur.

Ræða Péturs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert