Sveitarstjórn Rangárþings eystra, almannavarnanefnd og fleiri hafa farið þess á leit við Umhverfisstofnun og Siglingastofnun að hætt verði við að mjókka námaveg á Hamragarðaheiði.
Vegurinn var lagður 12 til 14 metra breiður vegna efnisflutninga við gerð Landeyjahafnar. Leyfi fyrir veginum fékkst með því skilyrði að hann yrði mjókkaður í sjö metra að framkvæmdum loknum.