Margt fólk mætti í verslun Lindex á Íslandi í Smáralind þegar hún var opnuð á ný, eftir nokkurra daga hlé vegna vöruskorts, klukkan ellefu í dag. Biðraðir voru við mátunarklefana.
Starfsfólki var fjölgað til að unnt yrði að sinna viðskiptavinum, eftir reynsluna frá örtröðinni sem var í versluninni um síðustu helgi.