Formannskjör stendur nú yfir á landsfundi Sjálfstæðisflokksins en tvö eru í kjöri, Bjarni Benediksson og Hanna Birna Kristjánsdóttir. Úrslit ættu að liggja fyrir á fjórða tímanum í dag.
Þegar niðurstaða formannskjörs liggur fyrir verður varaformaður kjörinn. Tvö hafa lýst yfir framboði, Ólöf Nordal og Halldór Gunnarsson.