Björgunarsveitir í Rangárvallasýslu leita nú tveggja pilta. Skv. heimildum mbl.is struku þeir frá unglingaheimilinu að Geldingalæk á Rangárvöllum.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu og björgunarsveitirnar á Hvolsvelli og í Landeyjum eru við leit. „Leitin er hafin og nú erum við að kortleggja aðgerðir og hvernig við verður brugðist," sagði varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli í samtali við mbl.is.